Einbýlishús, Reykjavík
Microcement á gólfi í gegnum allt húsið, ein samfelld heild án samskeyta.Ljósmyndir: askogengSkoða verkið

Rustic verktakar leggja microcement, skrautáferðir og epoxý- og flotgólf á heimilum og í atvinnuhúsnæði, á höfuðborgarsvæðinu og um allt land. Handunnið, lag fyrir lag.
Við vinnum með yfirborð sem þola daglegt líf og eldast vel.
Lagt í 2–3 mm þykkt beint á gólf, veggi, sturtur, borðplötur og stiga, oftast ofan á það sem fyrir er. Engin samskeyti, engar fúgur. Einnig skrifað microsement eða míkrósement.
Allt um microcementKalkáferðir, pússaður steinn, málmáferðir og steinsteypuáferð á veggi sem eiga að vera aðalatriði rýmisins.
Allt um skrautveggiVönduð málun innanhúss á veggjum, loftum og innréttingum, unnin af sama teymi og leggur áferðirnar.
Slétt, samfelld epoxý- og flotgólf í bílskúra, verslanir, vinnurými og heimili. Slípun, grunnur, flotun og lökkun.
Nánar um epoxý- og flotgólfGólf, veggir, sturtur, borðplötur og afgreiðsluborð. Allt lagt af okkur sjálfum, hér á Íslandi.
Microcement á gólfi í gegnum allt húsið, ein samfelld heild án samskeyta.Ljósmyndir: askogengSkoða verkið
Microcement á veggjum og gólfi, vatnshelt í gegn og engar fúgur.Skoða verkið
Microcement á eyju og borðplötum, vaskurinn felldur beint í plötuna.Skoða verkið
Gólf og afgreiðsluborð í microcementi, borðin klædd í heilu lagi.Skoða verkið
Skrautáferð á veggjum og microcement á gólfi sem þolir umferðina.Skoða verkið
Microcement á gólfi, lagt beint ofan á gamla gólfið án þess að rífa neitt út.Skoða verkið
Microcement á veggjum og gólfi í litlu rými, vatnshelt í gegn.Skoða verkið
Microcement – oft skrifað microsement eða míkrósement – er ekki málning heldur kerfi. Hvert lag er lagt þegar lagið undir er þornað og pússað, og saman verða þau 2–3 mm þykkur flötur án samskeyta. Smelltu á lögin til að sjá hvað hvert þeirra gerir.
Lögin, ofan frá
Við vinnum með tveimur gerðum af microcementi: tilbúnu deigi sem er vatnshelt í gegn og hentar í votrými og á borðplötur, og dufti sem er hrært með vatni og hentar á stór gólf. Lagskiptingin er sú sama.
5 / 7
Lagið sem þú sérð og snertir. Pússað fínt, ryksugað og strokið af með rökum klút áður en lakkið fer á.
Þrif eftir það: rakur klútur og hlutlaus sápa. Aldrei klór, sýruhreinsiefni eða skrúbbsvampar.
24 klst
Ganga varlega í sokkum
48 klst
Létt húsgögn með filttöppum, ekkert vatn
7 dagar
Vatn og rakur klútur, sturtan tekin í notkun
30 dagar
Fullharðnað: þung húsgögn, mottur og teppi
Sementsbundið efni sem er handlagt í 2–3 mm þykkt og lakkað. Útkoman er samfellt, samskeytalaust yfirborð með lifandi áferð, á gólf, veggi, borðplötur og í sturtur.
Já, þrjár stafsetningar á sama efninu. Microcement er alþjóðlega heitið, microsement og míkrósement eru íslensku útgáfurnar. Við notum microcement á síðunni, en þú finnur okkur undir öllum þremur.
Já, í langflestum tilfellum. Flísarnar þurfa að vera fastar, þá eru þær grunnaðar og fúgurnar jafnaðar með neti áður en microcementið er lagt. Ekkert niðurrif, ekkert ryk.
Veggir og baðherbergi eru oftast á bilinu 32–48 þúsund kr. á fermetra með efni, vinnu og vsk. Stór gólf eru ódýrari á fermetrann, lítil verk undir 10 fermetrum dýrari, því fötur, kantar og þurrktími vega jafn þungt hvort sem rýmið er lítið eða stórt. Sendu okkur myndir og mál og þú færð skriflegt tilboð samdægurs, ókeypis.
Meðalbaðherbergi tekur um eina viku, þar af er stór hluti þurrktími á milli umferða. Létt umferð er í lagi daginn eftir lökkun og full notkun, þar með talið sturta, eftir um viku.
Já. Í votrými notum við tilbúið microcement sem er vatnshelt í hverju einasta lagi, ekki bara í lakkinu, og undir sturtuveggi og gólf fer að auki þéttikerfi. Þess vegna dökknar það ekki af vatni og hentar í sturtur, á baðgólf og við vaska.
Engar fúgur. Microcement er ein samfelld heild, þannig að óhreinindi og mygla eiga sér hvergi samastað, og rýmið virkar stærra og rólegra. Það er líka lagt beint yfir gömlu flísarnar, svo niðurrif, ryk og gámur sparast.
Microcement fylgir undirlaginu. Ef undirlagið hreyfist getur komið hársprunga, þess vegna skiptir undirbúningurinn og netstyrkingin mestu máli. Komi sprunga má gera við hana staðbundið.
Með vatni og mildri, hlutlausri sápu. Forðastu súr efni, klór og grófa svampa, þau geta mattað lakkið. Mottur í sturtu og undir þungum húsgögnum lengja endinguna.
Tugir staðallita, frá hvítu og beis yfir í djúpgrátt og svart, og hægt er að blanda sérlit. Við komum með lökkuð sýnishorn heim til þín svo þú sjáir litinn í réttri birtu, og sýnishorn eru líka til hjá Gólfefnabúðinni.
Bæði eru samskeytalaus. Microcement er handlagt með spaða, 2–3 mm þykkt, með lifandi áferð og hentar líka á veggi. Flotgólf er hellt út og sjálfjafnandi, alveg slétt, og hentar vel í bílskúra, verslanir og vinnurými.
Í sumum tilfellum. Sérstakt kerfi er til fyrir útisvæði og verandir, en íslenskt veður, frost og raki fara illa með flest yfirborð. Við metum hvert verk fyrir sig og segjum hreint út ef við mælum ekki með því.
Segðu okkur frá verkefninu og sendu myndir af rýminu ef þú getur. Þá getum við oftast gefið verð strax.
Þjónustusvæði: höfuðborgarsvæðið og landið allt. Akstur reiknast utan höfuðborgarsvæðisins.
Eða beint