RUSTIC

Stofa

Gamla gólfið fékk að vera. Microcementið var lagt beint ofan á það, og stofan fékk eitt samfellt gólf frá kamínunni að glugganum með sjávarútsýninu.

Fá tilboð

Eða hringdu í 844 8515

  • Stofa með samfelldu microcement-gólfi, stólum og kamínu
    Gólfið og kamínan
  • Stofa með microcement-gólfi, sófa og útsýni yfir sjóinn
    Gólfið undir sófanum
  • Stofa með microcement-gólfi í kvöldbirtu
    Kvöldbirta á gólfinu

Í stuttu máli

Fletir
Stofugólf
Undirlag
Lagt beint ofan á gamla gólfið
Kerfi
Microcement, lakk í þremur umferðum

Þetta er dæmigert verk fyrir þá sem vilja nýtt gólf án niðurrifs. Gamla gólfið var slípað, grunnað og netað, og microcementið lagt í 2–3 mm ofan á. Hurðir, þröskuldar og innréttingar voru eins og þau voru.

Í kvöldbirtunni sést hvað áferðin gerir: spaðaförin og litbrigðin koma fram þegar sólin lækkar, og gólfið lítur öðruvísi út klukkan sjö en klukkan tólf.

Kamínan og þung húsgögn fóru aftur á gólfið eftir mánuð, þegar efnið var fullharðnað, með filttöppum undir fótunum eins og á parketi.

Ertu með svipað verkefni?

Sendu okkur myndir af rýminu og fermetra. Þá getum við oftast gefið verð strax og sagt þér hvenær við komumst.

Fá tilboð

Eða hringdu í 844 8515

Hafa samband

Segðu okkur frá verkefninu og sendu myndir af rýminu ef þú getur. Þá getum við oftast gefið verð strax.

Þjónustusvæði: höfuðborgarsvæðið og landið allt. Akstur reiknast utan höfuðborgarsvæðisins.

Eða beint

Hvað á að gera?

Myndir af rýminu (valfrjálst)

Allt að 6 myndir, teknar beint úr símanum.

Við svörum yfirleitt innan dags.