RUSTIC

Microcement: samskeytalaus áferð á gólf, veggi og baðherbergi

Microcement, líka skrifað microsement eða míkrósement, er örþunn steinsteypuáferð sem er handlögð í 2–3 mm þykkt og lökkuð. Engar fúgur, engin samskeyti, og oftast lagt beint ofan á það sem fyrir er. Hér er það sem við erum oftast spurð um: hvað það er, hvar það hentar, hvernig það er lagt, hvað það kostar og hvernig það endist.

Fá tilboð

Eða hringdu í 844 8515

Hvað er microcement?

Microcement er skrautáferð úr sementi, fjölliðum, trefjum og örfínum steinefnum. Efnið er dregið upp með spaða í þunnum lögum, pússað á milli og lakkað í lokin. Útkoman er samfelldur flötur, 2–3 mm þykkur, með lifandi áferð sem minnir á steypu en er hlýrri og mýkri viðkomu.

Af því að lagið er svona þunnt þarf hvorki að brjóta út gamlar flísar né hækka gólf. Við grunnum það sem fyrir er, styrkjum með neti og leggjum beint ofan á. Það sparar tíma, kostnað og rask, og er ástæðan fyrir því að microcement er orðið fyrsta val margra þegar baðherbergi eða gólf fær nýtt líf.

Nafnið ruglar marga: microcement, microsement og míkrósement er allt sama efnið. Microcement er alþjóðlega heitið og við notum það hér, en þú finnur okkur undir öllum þremur.

Hvar hentar microcement?

  • Gólf

    Stofur, gangar, eldhús, verslanir og veitingastaðir. Eitt samfellt gólf í gegnum alla íbúðina, lagt yfir flísar, steypu eða flot. Fer vel með gólfhita.

    Microcement á gólf
  • Baðherbergi og sturtur

    Veggir, gólf og sturta í einni heild, vatnshelt í hverju lagi. Algengasta verkið okkar og það sem flestir spyrja um.

    Microcement á baðherbergi
  • Veggir

    Lifandi, skýjuð steináferð á einn vegg eða allt rýmið. Veggur í fullri hæð er ódýrari á fermetrann en hlutaveggur, því kantar og teipvinna ráða tímanum.

  • Borðplötur og innréttingar

    Eldhúseyjur, baðinnréttingar og afgreiðsluborð klædd í heilu lagi, vaskurinn felldur beint í plötuna.

  • Stigar

    Tröppur og stigahús án samskeyta, með grófari áferð þar sem þarf stamara yfirborð.

  • Atvinnuhúsnæði

    Verslanir, veitingastaðir og skrifstofur. Þolir umferðina, er auðvelt að þrífa og lítur eins út eftir mörg ár.

  • Gangur með samfelldu microcement-gólfi og bogadregnum stálvegg

    Gólf, einbýlishús í Reykjavík

  • Sturta með microcement á veggjum og blöndunartæki úr stáli

    Sturta, vatnshelt í hverju lagi

  • Eldhúseyja klædd microcementi við svartar innréttingar

    Eldhúseyja, Garðabæ

Tvær gerðir, sama kerfi

Við vinnum með tveimur gerðum af microcementi. Tilbúið deig úr fötu sem er vatnshelt í hverju einasta lagi, ekki bara í lakkinu. Það notum við í votrými og á borðplötur, af því að það dökknar ekki þótt vatn komist að því. Og duft sem er hrært með vatni, með mjög hátt þrýstiþol og brunaflokk A1. Það hentar best á stór gólf og veggi í þurrum rýmum.

Lagskiptingin er sú sama í báðum: grunnur og net, tvö grunnlög, tvö yfirborðslög, porufyllir og lakk. Sjö lög sem saman verða þrír millimetrar. Smelltu á lögin hér fyrir neðan til að sjá hvað hvert þeirra gerir.

Sjö lög. Þrír millimetrar.

Microcement – oft skrifað microsement eða míkrósement – er ekki málning heldur kerfi. Hvert lag er lagt þegar lagið undir er þornað og pússað, og saman verða þau 2–3 mm þykkur flötur án samskeyta. Smelltu á lögin til að sjá hvað hvert þeirra gerir.

Lögin, ofan frá

Við vinnum með tveimur gerðum af microcementi: tilbúnu deigi sem er vatnshelt í gegn og hentar í votrými og á borðplötur, og dufti sem er hrært með vatni og hentar á stór gólf. Lagskiptingin er sú sama.

5 / 7

Yfirborðslag 2

Efni
Sama efni, sami litur
Þykkt
0,5 mm
Þornun
12–24 klst

Lagið sem þú sérð og snertir. Pússað fínt, ryksugað og strokið af með rökum klút áður en lakkið fer á.

Eftir síðustu lakkumferð

Þrif eftir það: rakur klútur og hlutlaus sápa. Aldrei klór, sýruhreinsiefni eða skrúbbsvampar.

  1. 24 klst

    Ganga varlega í sokkum

  2. 48 klst

    Létt húsgögn með filttöppum, ekkert vatn

  3. 7 dagar

    Vatn og rakur klútur, sturtan tekin í notkun

  4. 30 dagar

    Fullharðnað: þung húsgögn, mottur og teppi

Hvað kostar microcement?

Verðið ræðst af fermetrum, undirlagi og hversu margir fletir eru lagðir. Gólf eitt og sér er ódýrara á fermetrann en gólf, veggir og sturta saman, og lítil verk eru dýrari á fermetrann en stór, því fötur, kantar og þurrktími vega jafn þungt hvort sem rýmið er fjórir fermetrar eða fjörutíu.

Veggir í fullri hæð32–38 þús. kr. á m²
Baðherbergi, veggir og gólf38–48 þús. kr. á m²
GólfStærð gólfsins ræður verðinu, tilboð samdægurs
Borðplötur og sérsmíðiFrá um 56 þús. kr. á m², fer eftir formi og köntum

Viðmiðunarverð með efni, vinnu og vsk, miðað við höfuðborgarsvæðið. Akstur bætist við utan höfuðborgarsvæðisins.

Í verðinu er allt sem þarf: undirbúningur, grunnur og net, fjórar umferðir af microcementi, porufyllir og lakk. Sendu okkur myndir af rýminu og fermetra og þú færð skriflegt tilboð samdægurs, ókeypis.

Hvernig er microcement lagt?

Meðalbaðherbergi tekur um viku, þar af er meira en helmingurinn þurrktími á milli umferða. Við gefum alltaf upp tvö möguleg tímabil fyrir verkið í stað þess að lofa einni dagsetningu, því þurrktíminn ræðst af hita og raka í húsinu.

  1. Dagur 1

    Undirbúningur. Flísar slípaðar og fúgur jafnaðar, gólf ryksugað og allt teipað af. Grunnur borinn á og glertrefjanet lagt í hann.

  2. Dagur 2–3

    Grunnlög 1 og 2. Grófkorna microcement, einn millimetri hvort lag, pússað á milli. Eftir annað lagið sést netið ekki lengur.

  3. Dagur 3–4

    Yfirborðslög 1 og 2. Fína lagið sem gefur áferðina og litinn. Hér verða spaðaförin til sem gera hvert verk einstakt.

  4. Dagur 5–6

    Porufyllir og tvær til þrjár umferðir af tvíþátta lakki, sólarhringur á milli umferða.

  5. Dagur 7

    Ganga má varlega í sokkum. Létt húsgögn eftir tvo daga, vatn og sturta eftir viku, fullharðnað eftir mánuð.

Yfirborðslag dregið upp með spaða. Spaðaförin verða að áferðinni sem þú sérð og snertir.

Kostir og gallar, hreint út

Kostir

  • Engar fúgur og engin samskeyti. Óhreinindi og mygla eiga sér hvergi samastað og þrifin eru rakur klútur.

  • Lagt beint yfir flísar, steypu og flot. Ekkert niðurrif, ekkert ryk, enginn gámur.

  • Vatnshelt kerfi í votrými, í hverju lagi en ekki bara í lakkinu.

  • Tugir lita og áferð frá spegilsléttu í gróft. Sama efni á gólf, veggi, borð og stiga, svo rýmið verður ein heild.

  • Aðeins 2–3 mm. Hurðir, þröskuldar og innréttingar haldast eins og þau eru.

Það sem þú þarft að vita

  • Microcement fylgir undirlaginu. Hreyfist undirlagið getur komið hársprunga. Þess vegna skiptir undirbúningur og net mestu máli, og þess vegna segjum við nei ef undirlagið er ekki í lagi.

  • Áferðin er lifandi. Spaðaför og litbrigði eru hluti af útlitinu, ekki galli. Sá sem vill alveg einsleitan flöt ætti frekar að velja flotgólf.

  • Lakkið ver efnið og þarf hlutlausa sápu. Klór, sýra og skrúbbsvampar matta það með tímanum.

  • Verðið á fermetrann er hærra en á ódýrustu flísum, en sambærilegt við vandaðar flísar þegar niðurrif, fúgun og tími eru talin með.

Litir, áferð og sýnishorn

Tugir staðallita, frá hvítu og beis yfir í djúpgrátt og svart, og hægt er að blanda sérlit eftir kóða. Áferðin ræðst af korninu og spaðanum: fínkorna gefur rólega, slétta áferð á veggi, miðlungskorn meira líf og betra grip á gólfi. Lakkið er matt eða satín.

Við komum með lökkuð sýnishorn heim til þín svo þú sjáir litinn í réttri birtu, og sýnishorn eru líka til hjá Gólfefnabúðinni. Sendu okkur gjarnan Pinterest-myndir af því sem þú ert með í huga, þá finnum við lit og áferð sem passar.

  • Baðherbergisveggur með microcement-áferð í ljósgráum lit

    Fínkorna áferð á vegg

  • Bar með dökku microcement-gólfi og hengilömpum

    Dökkt gólf, miðlungskorn

  • Microcement-borðplata með eikarskápum fyrir ofan

    Borðplata, satínlakk

Umhirða og ending

Rakur klútur og hlutlaus sápa, ekkert annað. Mottur í sturtu og undir þungum húsgögnum lengja endinguna, og filttappar undir stóla og borð eru sjálfsagðir eins og á parketi. Lakkið má endurnýja eftir mörg ár án þess að snerta efnið sjálft.

Komi sprunga eða skemmd má gera við hana staðbundið. Við geymum litakóðann á hverju verki svo viðgerðin passi.

Fáðu verð í microcement samdægurs

Sendu okkur myndir af rýminu og fermetra. Þá getum við oftast gefið verð strax og sagt þér hvenær við komumst.

Fá tilboð

Eða hringdu í 844 8515

Algengarspurningarummicrocement

Má leggja microcement ofan á gamlar flísar?

Já, í langflestum tilfellum. Flísarnar þurfa að vera fastar, þá eru þær slípaðar, grunnaðar og fúgurnar jafnaðar með neti áður en microcementið er lagt.

Er microcement hált?

Ekki frekar en flísar. Á gólfum notum við miðlungskorn og matt lakk sem gefur grip, og í sturtubotn má bæta hálkuvörn í lakkið.

Hentar microcement með gólfhita?

Já. Efnið er þunnt og leiðir hitann vel. Gólfhitinn þarf að vera slökktur meðan lagt er og hækkaður hægt eftir á.

Hversu lengi endist microcement?

Rétt lagt og rétt þrifið endist það eins og vandað gólfefni, í áratugi. Lakkið er slitlagið og má endurnýja þegar þörf er á.

Getið þið lagt microcement utan höfuðborgarsvæðisins?

Já, við vinnum um allt land. Akstur reiknast utan höfuðborgarsvæðisins og við reynum að raða verkum saman eftir landshlutum.

Þola borðplötur úr microcementi hita og hnífa?

Lakkið þolir daglega notkun, en heita potta á að setja á undirlag og skera á bretti, eins og á flestum borðplötum. Blettir af víni, kaffi og olíu þurrkast af ef það er gert fljótlega.

Hafa samband

Segðu okkur frá verkefninu og sendu myndir af rýminu ef þú getur. Þá getum við oftast gefið verð strax.

Þjónustusvæði: höfuðborgarsvæðið og landið allt. Akstur reiknast utan höfuðborgarsvæðisins.

Eða beint

Hvað á að gera?

Myndir af rýminu (valfrjálst)

Allt að 6 myndir, teknar beint úr símanum.

Við svörum yfirleitt innan dags.