RUSTIC

Microcement á baðherbergi: nýtt bað á viku, án niðurrifs

Baðherbergi eru algengasta verkið okkar. Gamlar flísar fá að vera, við leggjum microcement beint yfir þær, veggi, gólf og sturtu í einni heild. Engar fúgur til að skrúbba, ekkert niðurrif, og baðið er komið í notkun eftir um viku.

Fá tilboð

Eða hringdu í 844 8515

Af hverju microcement í baðherbergi?

Fúgur eru veikasti punkturinn í hverju baðherbergi. Þar safnast óhreinindi, þar byrjar myglan og þar fer vatnið á endanum í gegn. Microcement hefur engar fúgur. Veggir, gólf og sturtubotn verða ein samfelld heild sem er þrifin með rökum klút.

Af því að efnið er aðeins 2–3 mm þykkt leggjum við það beint ofan á flísarnar sem fyrir eru. Það sparar niðurrif, ryk, gám og marga daga af vinnu, og baðið hækkar ekki um sentimetra.

Útlitið er það sem flestir sækjast eftir: rólegt, matt steinyfirborð í einum lit sem lætur lítið baðherbergi virka stærra.

  • Baðherbergisveggur með microcement-áferð, vaskur og blöndunartæki úr stáli

    Veggur og vaskur

  • Sturta með microcement á veggjum, blöndunartæki úr stáli og gluggi

    Sturtan

  • Sturtuhorn með glerhurð og microcement á veggjum

    Lítið bað, sturtuhornið

Vatnshelt í hverju lagi

Í votrými notum við tilbúið microcement sem er vatnshelt í hverju einasta lagi, ekki bara í lakkinu. Það skiptir máli: ef lakkið rispast með tímanum kemst vatnið samt ekki í efnið og það dökknar ekki.

Undir sturtuveggi og gólf fer að auki þéttikerfi, og við niðurfallið er unnið sérstaklega svo vatnið leiti rétta leið. Lakkið fer þrjár umferðir í sturtunni í stað tveggja annars staðar.

Ferlið, dag fyrir dag

  1. Dagur 1

    Flísarnar slípaðar og fúgurnar jafnaðar, blöndunartæki og niðurfall tekin af eða teipuð. Þéttikerfi í sturtunni, síðan grunnur og glertrefjanet yfir allt.

  2. Dagur 2–3

    Tvö grunnlög af microcementi, pússað á milli.

  3. Dagur 4

    Tvö yfirborðslög í þeim lit sem þú valdir. Áferðin verður til.

  4. Dagur 5–6

    Porufyllir og þrjár umferðir af lakki í sturtunni, tvær annars staðar. Sólarhringur á milli.

  5. Dagur 7

    Blöndunartæki sett upp aftur. Vaskur og klósett í notkun strax, sturtan eftir viku frá síðustu lakkumferð.

Á meðan verkið stendur er baðherbergið lokað. Ef það er eina baðið í íbúðinni skipuleggjum við verkið svo klósettið sé sem styst úr notkun.

Hvað kostar microcement í baðherbergi?

Baðherbergi eru oftast á bilinu 38–48 þúsund kr. á fermetra með efni, vinnu og vsk. Veggir í fullri hæð eru ódýrari á fermetrann en hlutaveggir, því kantarnir og teipvinnan ráða tímanum, og sturtan kostar meira en veggur af því að þar fara þéttikerfi og auka lakkumferð undir.

Lítið bað, um 12 m² veggir og 3 m² gólfum 570–720 þús. kr.
Meðalbað, um 20 m² veggir og 5 m² gólfum 0,95–1,2 millj. kr.
Stórt bað eða tvö bað samanLægra verð á fermetrann, tilboð

Viðmið með efni, vinnu og vsk. Nákvæmt verð færðu á myndum og málum, samdægurs og ókeypis.

Hvað þarf að vera klárt?

  • Flísarnar fastar. Lausar flísar eru teknar af og holan fyllt áður en við byrjum.

  • Pípulagnir og niðurfall í lagi. Nú er rétti tíminn til að færa blöndunartæki eða skipta um niðurfall.

  • Litur valinn. Við komum með lökkuð sýnishorn heim til þín, og sýnishorn eru líka til hjá Gólfefnabúðinni.

  • Hiti og loftun. Rýmið þarf að vera á bilinu 15–25 gráður og þurrt meðan lagt er.

  • Vaskur á microcement-vegg með spegli og rifflaðu gleri

    Vaskur og spegill

  • Lítið baðherbergi með microcement á veggjum og gólfi og eikarinnréttingu

    Lítið bað, veggir og gólf

  • Innra hol með microcement-gólfi og viðarklæddum vegg

    Gólfið heldur áfram fram á gang

Fáðu verð í baðherbergið samdægurs

Sendu myndir af baðinu, fermetra á veggjum og gólfi og hvort sturtan á að fara með. Þá getum við oftast gefið verð strax.

Fá tilboð

Eða hringdu í 844 8515

Spurtumbaðherbergi

Er microcement í sturtu virkilega vatnshelt?

Já. Efnið sem við notum í votrými er vatnshelt í hverju lagi, þéttikerfi fer undir sturtuveggi og gólf, og lakkið fer þrjár umferðir. Sturtan er tekin í notkun viku eftir síðustu lakkumferð.

Getur komið mygla í microcement?

Mygla þarf fúgur, rifur og raka til að festa sig. Microcement hefur engar fúgur og lakkað yfirborð, svo hún á sér hvergi samastað. Loftun á baðinu skiptir samt máli eins og alltaf.

Má leggja microcement á sturtubotn með niðurfalli?

Já. Niðurfallið er unnið sérstaklega með þéttikraga og hallinn að því helst eins og hann var. Línuniðurfall gefur fallegustu útkomuna.

Hvað með baðkar og innréttingar?

Baðkör, innréttingar og vaskar geta verið á sínum stað, við teipum af og vinnum í kringum þau. Ef þú ætlar að skipta um innréttingu er best að gera það um leið.

Hversu lengi er baðið úr notkun?

Um viku. Vaskur og klósett komast í notkun strax eftir lökkun, sturtan eftir sjö daga.

Hafa samband

Segðu okkur frá verkefninu og sendu myndir af rýminu ef þú getur. Þá getum við oftast gefið verð strax.

Þjónustusvæði: höfuðborgarsvæðið og landið allt. Akstur reiknast utan höfuðborgarsvæðisins.

Eða beint

Hvað á að gera?

Myndir af rýminu (valfrjálst)

Allt að 6 myndir, teknar beint úr símanum.

Við svörum yfirleitt innan dags.