
Veggur og vaskur 
Vaskur og spegill 
Sturtan
Í stuttu máli
- Fletir
- Veggir, gólf og sturta
- Kerfi
- Tilbúið microcement, vatnshelt í hverju lagi, þéttikerfi undir sturtu
- Tími
- Um vika, sturtan í notkun viku eftir lökkun
Hér er allt rýmið í microcementi: veggirnir í fullri hæð, gólfið og sturtan. Í votrými notum við tilbúið microcement sem er vatnshelt í hverju lagi, og undir sturtuveggi og gólf fór þéttikerfi áður en lagt var.
Glugginn í sturtunni er það sem flestir taka eftir. Microcementið fer í kringum gluggann og inn í karminn án nokkurra samskeyta, þannig að vatnið á sér enga leið inn.
Litur og áferð voru valin með lökkuðum sýnishornum í rýminu sjálfu, því ljósgráir litir breytast mikið eftir birtunni. Lakkið fór þrjár umferðir í sturtunni og tvær annars staðar.
Fleiri verk
Verkin okkarHafa samband
Segðu okkur frá verkefninu og sendu myndir af rýminu ef þú getur. Þá getum við oftast gefið verð strax.
Þjónustusvæði: höfuðborgarsvæðið og landið allt. Akstur reiknast utan höfuðborgarsvæðisins.
Eða beint


